Íţróttakennarafélag Íslands
Skođanakönnun
Ćtlar ţú ađ mćta á endurmenntunardaginn í haust?
 
Auglýsingar
Mjólkursamsalan ehf
Nýtt efni
Teljari
Nú er(u) 12 gestir á síđunni
Heimsóknir alls: 85630
Meistaranám í Íţrótta- og heilsufrćđi
mánudagur, 10 mars 2008

Nú er opið fyrir umsóknir í meistaranám við Kennaraháskóla Íslands/menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Hér  að neðan má sjá bækling um  meistaranám í íþrótta- og heilsufræði.

 

Umsóknareyðublað er að finna á:  http://www.khi.is/?q=umsoknir <https://neptune.khi.is/exchweb/bin/redir.asp?URL=http://www.khi.is/?q=umsoknir>

Nánari upplýsingar er að finna í náms- og kennsluskrá sem finna má á vef skólans.

Umsóknarfrestur er til 15. mars.

 

Sjá nánar:Meistaranám í íþrótta- og heilsufræði.

 

 

 

 

 

 
Opinn fundur um vetraríţróttir fatlađa
miđvikudagur, 05 mars 2008
Opinn fundur um vetraríþróttir og útivist fyrir fatlaða fimmtudaginn 6. mars 2008 kl. 20.00
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal

 

Beth Fox frá Winter Park, Colorado kynnir vetrar- og sumarstarfsemi hjá

Winter Park en þar er boðið upp á fjölbreytt útivistartilboð fyrir fatlaða

 

 

 

 
Námskeiđ í vetraríţróttum og útivist fatlađra
miđvikudagur, 05 mars 2008
Námskeið ÍF og VMÍ í samstarfi við Winter Park, Colorado,
Hlíðarfjalli, Akureyri 7. – 9. mars 2008

 

Markhópar;  Fatlaðir einstaklinga s.s mænuskaðaðir, fjölfatlaðir, þroskaheftir, fjölfatlaðir,þroskaheftir,hreyfihamlaðir og einstaklingar sem misst hafa útlimi, sjónskertir og blindir.

Aðstandendur fatlaðra, aðstoðarfólk, fagfólk, skíðakennarar og aðrir sem áhuga hafa á að kynna sér þennan möguleika fatlaðra til útivistar eru sérstaklega velkomnir.

Þátttakendur sjá sjálfir um gistingu og fæði.        Námskeiðsgjald kr:   4.500.-

Allur útbúnaður er til staðar.

 

Nánari upplýsingar.

 
Golfferđ
ţriđjudagur, 12 febrúar 2008

Ladies Golfweek í Himmerland 2008

Undanfarin ár hefur hópur kvenkylfinga farið á vegum Golfleikjaskólans til Himmerland í Danmörku í golfskóla sem kallaður er Ladies Golfweek. Þar koma saman konur frá nokkrum löndum til þess að læra og spila golf ásamt því að njóta alls þess sem Himmerland golf & countryclub býður upp á sjá www.himmerlandgolf.dk

S.l. sumar fóru 35 íslenskar konur í LGW og voru sérlega heppnar með veður sól og blíða hvern einasta dag. www.golfleikjaskolinn.is

Þarna sjá eingöngu reyndir kvengolfkennarar um kennsluna og aðra dagskráliði golfskólans LGW.

Meðal þeirra er Denise Hastings sem er mörgum Íslendingum kunnug og Christine Langford.

Gerðar eru kröfur um að þátttakendur hafi ekki hærri forgjöf en 36 og kunni að telja punkta.

Eins og undanfarin ár mun Golfleikjaskólinn sjá um að skipuleggja ferð íslensku þátttakendanna og skrá í ferðina sem verður farin 8.-13. Júní 2008.  Fullbókað hefur verið í þessa einstöku ferð á hverju ári ekki allar komist með sem vildu.

Verð fyrir einstaklingsherbergi.  Ca.  148.885.- 

Verð á konu í tveggjam.herbr.   ca.  133.285.-

Verð eru miðað við gengi  DKK 4/2/08

Innifalið: Flug+skattar, golfpokagjald, akstur Kaupmannahöfn-Himmerland- Kaupmannahöfn  með 3 klst. stoppi í Arhus á heimleiðinni, gisting á Resort Himmerland, allur matur (ekki drykkir), golfkennsla og golfkeppni, ótakmarkað golf, ógleymaleg kvöldskemmtun og frábær fararstjórn.

Ekki innifalið: Drykkir og matur á ferðadögum.

Með golfkveðju,

Anna Día og Tinna Ósk

 

 

 

 

 

 

 
Mikilvćgi hreyfingar fyrir börn međ međfćdda hjartagalla
fimmtudagur, 06 desember 2007

Miðvikudaginn 23. janúar 2008 mun Birna Bjarnason-Wehrens PhD, doktor í íþróttafræðum og endurhæfingu, aðstoðarprófessor við "Institute for Cardiology and Sports Medicine German Sport University", Köln, Þýskalandi, halda fyrirlestur um mikilvægi hreyfingar fyrir börn með meðfædda hjartagalla. Í erindi sínu kemur Birna  meðal annars inná hreyfiþroska, tengsl hreyfingar og almenns þroska og mikilvægi þess að allir sem starfa með þessum börnum og næst þeim standa geti leiðbeint þeim af þekkingu.

                                                                                                                

Fyrirlesturinn verður í sal ÍSÍ að Engjavegi 6 (vestasta húsið),

2. hæð, miðvikudaginn 23. janúar 2008 kl. 17:15.

Fyrirlesturinn er hugsaður fyrir íþróttakennara, sjúkraþjálfara, leikskólakennara, foreldra, kennara og aðra sem koma að uppeldi, þjálfun og kennslu hjartveikra barna, en allir áhugasamir eru velkomnir. Aðgangur ókeypis.

 

Birna Bjarnason-Wehrens er íslensk kona, doktor í íþróttafræðum og  endurhæfingu frá German Sport University í Köln, Þýskalandi. Hún hefur skrifað margar greinar og tekið þátt í rannsóknum um hreyfingu/þjálfun hjartasjúklinga og hefur haft sérstakan áhuga á að skoða hreyfingu og hreyfiþroska hjá börnum með meðfædda hjartagalla. Hún hlaut meðal annars verðlaun evrópsku hjartasamtakanna (European Society of Cardiology) árið 2006 fyrir kynningu sína á rannsókn sem hún gerði á hreyfiþroska barna með meðfædda hjartagalla borið saman við heilbrigða jafnaldra. 

 
Námskeiđ í slökun hjá Guđjóni Bergmann
ţriđjudagur, 08 janúar 2008

Kæru íþróttakennarar,

 

Gleðilegt nýtt ár.

 

Með þessum pósti vil ég  beina athygli ykkar að nýju námskeiði sem ég mun leiðbeina dagana 22., 24. og 27.janúar 2008 í Menningarmiðstöðinni Gerðbergi.

 

Námskeiðið ber yfirskriftina Lærðu að kenna slökun og er sérstaklega hugsað fyrir fagfólk sem vill nýta sér slökunartækni jafnt í persónulega og í starfi.

 

Námskeiðið er byggt á faglegum grunni. Ég mun leggja fram rannsóknir og ítarlegt lestrarefni mínu máli til stuðnings en á sama tíma kenna mjög góða slökunartækni og leiðir til að kenna þessa tækni undir mismunandi kringumstæðum.

 

Ég hef rúmlega 10 ára reynslu á þessu sviði, hef gefið út tvo geisladiska með slökunaræfingum, kennt rúmlega 5000 jógatíma og útskrifað tæplega 40 jógakennara. Bókin Þú ert það sem þú hugsar (G.B. 2007) mun fylgja námskeiðinu, en í henni er langur kafli um streitu og mikilvægi slökunar. Ég kenni áhrifaríka, einfalda og örugga leið til slökunar.

 

Rannsóknir hafa m.a. sýnt að slökun gagnast vel í tengslum við nám, ofvirkni, streitu, vöxt og margt fleira sem tengist ykkar starfsstétt.

 

Námskeiðið fer fram í þremur hlutum og fjöldi þátttakenda verður takmarkaður.

 

Námskeiðið kostar 27.900 kr.

 

Þriðjudaginn 8.janúar verð ég með kynningarfyrirlestur á Grand hótel Reykjavík þar sem ég mun meðal annars kynna ofangreint námskeið. Þann dag býðst öllum 30% afsláttur og ég vil bjóða þann afslátt áfram til ykkar.

 

Afslátturinn fyrir íþróttakennara miðast ekki einungis við þennan dag, heldur mun hann gilda allt fram að því að námskeiðið byrjar eða fyllist, hvort sem gerist fyrr.

 

Námskeiðið kostar 19.530 með 30% afslætti og skráning fer fram í gegnum www.gbergmann.is. Afsláttarkóði er KENNSLA.

 

Ég vona að sem flestir íþróttakennarar fái möguleika á að nýta sér þennan afslátt.

 

Ekki hika við að hafa samband við mig ef ykkur vantar frekari upplýsingar um námskeiðið.

 

Kær kveðja,

 

Guðjón Bergmann, fyrirlesari, rithöfundur og jógakennari

www.gbergmann.is

 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 78 - 88 af 95
Helstu tenglar
Forsíđa
Fréttir
Félagiđ
Námskeiđ
Kennsluefni
Tenglar
Pöntun fyrir boli 2010.
Innskráning





Týnt lykilorđ ?
Óskráđur notandi? Smelltu hér