Íţróttakennarafélag Íslands
Skođanakönnun
Ćtlar ţú ađ mćta á endurmenntunardaginn í haust?
 
Auglýsingar
Mjólkursamsalan ehf
Nýtt efni
Teljari
Nú er(u) 7 gestir á síđunni
Heimsóknir alls: 85629
Útskrifađir 2008 og starfsgallar
sunnudagur, 03 maí 2009

Nú ættu flestir þeir sem útskrifuðust í fyrra eða vorið 2008, og greiddu félagsgjald ÍKFÍ í haust, að vera búnir að fá starfsgalla. Ef einhverjir sem greiddu félagsgjaldið í haust eiga enn eftir að fá starfsgalla þá endilega sendið okkur póst á This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it  

 

Stjórnin 

 
Sundţjálfaranámskeiđ
ţriđjudagur, 14 apríl 2009

Þjálfaranámskeið 1

SSÍ stendur fyrir þjálfaranámskeiði nú á vordögum, námskeiðið verður tvær helgar og verkefna vinna þess á milli.

Föstudaginn 17. apríl    18:00 til 21:00 Staðsetning  auglýst síðar

Laugardaginn 18. apríl 09:00 til 17.00  Staðsetning auglýst síðar

Föstudaginn 8. maí        18:00 til 21.00  Íþróttamiðstöðinni Laugardal

Laugardaginn 9. maí      09:00 til 17.00  Íþróttamiðstöðinni Laugardal

 

Skráningu skal senda á This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it þar sem fram kemur fullt nafn, kennitala, netfang og símanúmer einning skal þar koma fram greiðandi og kennitala greiðanda. Skráningu skal skila eigi síðar en miðvikudaginn 15. apríl.

Námskeiðsgjald er 15.000 kr. Miðað er við að lágmarksfjöldi á námskeiðinu verði 10.

Kennarar á námskeiðinu verða Ólafur Þór Gunnlaugsson og Jacky Pellerin.

Með fyrirvara um breytingar á tímasetningum.

Fræðslunefnd SSÍ

 
Norćnt íţróttakennara námskeiđ
ţriđjudagur, 03 mars 2009

Noræna íþróttakennarnámskeiðið verður haldið 4-9. ágúst 2009 í Grebbestad í Svíðþjóð.  Kynnið ykkur málið nánar með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.

 

Námskeið í Grebbestad

Dagskrá námskeiðs

 
Spennandi námskeiđ
miđvikudagur, 11 febrúar 2009

Endurmenntun H.Í. er með tvö spennandi námskeið fyrir íþróttafræðinga og -kennara nú í febrúar.  Árangusrík liðsheild og Íþróttasálfræði.   Annað reyndar nú 12. febrúar þannig að það er betra að hafa hraðar hendur. 

 

Sjá nánari upplýsingar hér.

 
Ađalfundur FÁÍA
miđvikudagur, 04 febrúar 2009

Laugardaginn 14. febrúar kl. 14:00 verður aðalfundur FÁÍA haldinn í húsakynnum UMFÍ að Laugarvegi 170

 

Fundardagsrá:  Venjuleg aðalfundarstörf.

 

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þetta öfluga starf nánar, og hafa áhuga á að komast í skemmtilegan félagsskap, endilega mæti á fundinn eða geta hringt í formann félagsins Guðrúnu Nilsen í 691-0418

 
Skólaţríţraut FRÍ og Iceland Express 2009.
föstudagur, 12 desember 2008

Frjálsíþróttasamband Íslands, FRÍ mun efna til skólaþríþrautar fyrir 6. og 7. bekk grunnskólanna í landinu, þriðja veturinn í röð frá 1. febrúar til 1 maí 2009. Síðastliðinn vetur tóku 47 skólar þátt í þrautinni, víðsvegar af landinu.   

 

Keppt er í þremur greinum, kúluvarpi, hástökki og 200 metra hlaupi.

 

Mögulegt er að framkvæma þrautina í þrennu lagi, þannig að hver grein er framkvæmd í einum íþróttatíma.

 

Árangur nemendanna úr öllum greinunum þremur, er reiknaður til stiga samkvæmt unglingatöflum FRÍ.

 

Úrslitum er skilað til FRÍ, annað hvort í gegnum sérstakt vefskráningarkerfi þar sem árangur nemendanna, birtist við skráningu, á landslista allra þátttakenda eða með tölvupósti til skrifstofu FRÍ.

 

Sérstök úrslitakeppni er síðan haldin í upp úr miðjum maí, þar sem sextán efstu strákarnir og stelpurnar úr hvorum árgangi, yfir landið, hafa þátttökurétt eða samtals 64 keppendur.

 

Úrslitamótið verður framkvæmt í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal við bestu aðstæður sem völ er á.

 

Eins og fyrri ár, verða veitt vegleg verðlaun fyrir besta árangurinn í hvorum aldursflokki stráka og stelpna, en verðlaunin eru farseðill og hótelgisting á Gautarbogarleikunum í Svíþjóð, sem er ein stærsta frjálsíþróttahátíð sem haldin er á Norðurlöndum.

 

Allar upplýsingar um skólaþríþraut FRÍ frá síðastliðnum vetri, má finna á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins undir Skólaþríþraut vinstra megin á síðu FRÍ. Sjá http://www.fri.is/pages/articles6/skolathrithraut/

 

Öll gögn og upplýsingar um skólaþríþrautina verða send til skólanna eftir áramót  og þar verður fyrirkomulagi keppninnar lýst og jafnframt hvernig skráning árangurs nemenda fer fram.

 

Frjálsíþróttasambandið hvetur íþróttakennara í skólum landsins að framkvæma skólaþríþrautina í sínum skólum og gefa unga fólkinu tækifæri á því að taka þátt.

 

Arnþór Sigurðsson

Formaður útbreiðslunefndar FRÍ.

 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 56 - 66 af 95
Helstu tenglar
Forsíđa
Fréttir
Félagiđ
Námskeiđ
Kennsluefni
Tenglar
Pöntun fyrir boli 2010.
Innskráning





Týnt lykilorđ ?
Óskráđur notandi? Smelltu hér