Íţróttakennarafélag Íslands
Skođanakönnun
Ćtlar ţú ađ mćta á endurmenntunardaginn í haust?
 
Auglýsingar
Mjólkursamsalan ehf
Nýtt efni
Teljari
Nú er(u) 8 gestir á síđunni
Heimsóknir alls: 85630
Námskeiđ á vegum FÁÍA
mánudagur, 17 ágúst 2009


Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra.

   

Dómaranámskeið fyrir starfandi leiðbeinendur og iðkendur Boccia verður haldið í Árbæjarskóla, Reykjavík, laugardaginn 22. ágúst kl. 9.00 - 16.00.

Kennarar verða:  Ingi Bjarnar Guðmundsson og Karl Þorsteinsson.

Námskeiðið er einnig opið þeim sem vilja kynna sér leikinn.

Nánari upplýsingar gefur  Ingi Bjarnar í síma 690-9200.

 

Sunnudaginn 23. ágúst verður námskeið á sama stað fyrir leiðbeinendur sem annast æfingar og dansa fyrir aldraða.

 Námskeiðið verður tvískipt.  Annars vegar verða æfingar fyrir hreyfiskerta, t.d. stólaleikfimi og stóladans sem hentar vel á dvalarheimilum og dagvistun.  Hins vegar veða æfingar og dansar fyrir hressari iðkendur.

 

Kennarar verða:  Alberto Borges Moreno, Helena Jónasdóttir og Kolfinna Sigurvinsdóttir með æfingar og dans fyrir hreyfiskerta og Eygló Alexandersdóttir, Ástbjörg Gunnarsdóttir, Margrét Bjarnadóttir og Kolfinna Sigurvinsdóttir fyrir hressari iðkendur.

 

Námskeiðsgögn (æfingar og dansar) munu liggja frammi handa þátttakendum.

 

Þátttökugjald fyrir báða dagana er kr. 5000 og fyrir annan daginn kr. 3000 (hressing innifalin).

Skráning verður á skrifstofu UMFÍ í síma 568-2929 í síðasta lagi mánudaginn 17. ágúst.

Dagskrá námskeiðanna verður send til þátttakenda strax að skráningu lokinni.

 

 

 

Bestu kveðjur og í von um að heyra frá sem flestum þótt fyrirvari sé skammur.

 

     Stjórn FÁÍA

 
Viđtal viđ formann ÍKFÍ
föstudagur, 14 ágúst 2009

Rannsókn Dr. Valdísar á raddheilsu og heyrn íþróttakennara er nú á lokastigi. Dr. Valdís er

Nánar...
 
Fjör í Hrafnagilsskóla
miđvikudagur, 12 ágúst 2009
Mikið fjör er hjá þeim fáu íþróttakennurum sem mættu í Hrafnagilsskóla í Eyjafirði á endumenntunarnámskeið félagsins. Veðrið hefur leikið við þátttakendur. Í gær grilluðu allir saman upp í Kjarnaskógi eftir átakadag á námskeiðinu.namsk20093
 
Fréttir af ađalfundi
miđvikudagur, 12 ágúst 2009

  namsk20091

Í gær var aðalfundur félagsins haldinn í Hrafnagilsskóla í tengslum við endurmenntunarnáskeið félagsins sem fram fer þetta skiptið norðan heiða.

Helstu breytingar á stjórn félagsins urðu þær að út fóru tveir aðalmenn Katrín Harðardóttir sem gegnt hefur stöðu gjaldkera og Gunnar M. Jónsson sem hefur verið varaformaður. Inn í þeirra stað komu Davíð Ketilsson úr Mosfellsbæ og Hreiðar Gíslason frá Hafnarfirði.  Varamennirnir Tryggvi Heimsson og Ólafur Björnsson gengu einnig úr stjórn og inn í þeirra stað komu Andrés Eyjólfsson og Guðrún V. Ásgeirsdóttir. 

Uppstillinganefnd var skipuð þeim Eddu Jóhannsdóttur, Magnúsi Vigni Eðvaldssyni  sem voru í nefndinni á síðastliðnu ári, en Ólafur Björnsson kom nýr inn fyrir Má Hermannsson.  Sú nefnd vinnur að því að finna fólk í stjórn og stóð nefndin sig frábærlega, þar sem nóg var af fólki sem vildi komast í stjórn. Þakkar stjórn félagsins þeim kærlega fyrir flott starf.

 

 
Endurmenntunarnámskeiđ ÍKFÍ 2009
fimmtudagur, 09 júlí 2009
Framlengdur umsóknarfrestur til 25. júlí n.k..   Heldur fáir hafa skráð sig á námskeiðið í Hrafnagilskóla því hvetjum við þá sem hafa áhuga en hafa ekki en skráð sig til að ganga frá því sem fyrst til að hægt verði að  halda námskeiðið óbreytt.  Sínum starfi okkar virðingu og stundum reglubundna símenntun.
 
Endurmenntunarnámskeiđ ÍKFÍ 2009
ţriđjudagur, 02 júní 2009

Útiíþróttir, hreysti og þol.

 

 

Skráning er hafin á endurmenntunarnámskeið ÍKFÍ sem haldið verður í Hrafnagilsskóla Eyjafjarðarsveit  dagana 11.-13. Ágúst 2009. Námskeiðið er ætlað íþróttakennurum í grunn- og framhaldsskólum.  

Meðal efnis verða útiíþróttir, styrktarþjálfun úti og inni, hagnýtar þolþjálfunaraðferðir, sund, fimleikar, parkour, frjálsar íþrótti, einnig fyrirlestrar um afreksbrautir framhaldsskólanna og heyrn og raddheilsu íþróttakennara.

 

Nánar...
 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 45 - 55 af 95
Helstu tenglar
Forsíđa
Fréttir
Félagiđ
Námskeiđ
Kennsluefni
Tenglar
Pöntun fyrir boli 2010.
Innskráning





Týnt lykilorđ ?
Óskráđur notandi? Smelltu hér