Íţróttakennarafélag Íslands
Skođanakönnun
Ćtlar ţú ađ mćta á endurmenntunardaginn í haust?
 
Auglýsingar
Mjólkursamsalan ehf
Nýtt efni
Teljari
Nú er(u) 10 gestir á síđunni
Heimsóknir alls: 85629
Ráđstefna um starf íţróttaţjálfara Prenta Senda
fimmtudagur, 15 apríl 2010

Fræðslusvið ÍSÍ og Íþróttafræðasetur Menntavísindasviðs HÍ standa fyrir stuttri og hnitmiðaðaðri ráðstefnu um starf íþróttaþjálfara þann 30. apríl nk. frá 13:00-16:10 í höfuðstöðvum ÍSÍ í Laugardal.

Þessi ráðstefna markar vonandi upphaf að frekari kortlagningu á þjálfarastarfinu hér á landi.

Ráðstefnan er öllum opin og kostar ekkert.

 

Aðalfyrirlesari verður Steen Gleie frá Danmörku. Síðan munu reynsluboltar í

þjálfun á Íslandi segja frá því hvernig það er að vera þjálfari hvert í

sinni grein. Að lokum verða pallborðsumræður þar sem gestum er boðið að

spyrja og ræða efni fyrirlesaranna.

 

Mikilvægi þjálfarastarfsins dylst engum en starfið er fjölbreytt og

vandasamt. Rannsóknir á „mikilvægi íþrótta fyrir börn og unglinga“ og á

„brottfalli úr íþróttum“ benda til þess að þjálfarinn spili hvað stærstan

þátt í því að börnin haldist í íþróttunum og njóti þeirra. Því er mikils um

vert að bregða kastljósinu að starfin þessa aðila innan

íþróttahreyfingarinnar.

 

Meðal þess sem verður tekið fyrir á ráðstefnunni er:

 

a)    Menntunar- og hæfniskröfur við ráðningu þjálfara?

 

b)    Í hverju felst starfið?  Hvaða hugmyndir hefur fólk um þjálfara?

Skýrslur?

 

c)    Samstarfsaðilar (innan félags og utan).

 

d)    Mat á árangri í starfi þjálfarans.  Hvaða þættir eru metnir? Hvaða

þætti ætti að meta?

 

e)    Aðstöðumál, starfsaðstaða þjálfara, vinnutími, starfsöryggi, möguleiki

til starfsframa og menntunar.

 

f)    “Burn out”, hvað þarf til að viðhalda áhuga þjálfara?

 

g)    Framtíðarsýn fyrir fagið

 

Spjótin standa einnig á þjálfarana varðandi brottfall, íþróttalegan árangur

og fleira í þeim dúr. Hvernig er að vera þjálfari? Hvernig samræmist starfið

og vinnutími einkalífi einstaklinga og hjá fjölskyldufólki? Er mismunur á

körlum og konum í þessu starfi? Eru allir þjálfarar launaðir? Eiga þeir að

vera það? Hverju á það að skila umfram sjálfboðaliðastarf? Er þetta

mismunandi eftir aldri iðkenda og getustigi?

 

 

Dagskrá:

 

 

 

13.00 – 13.05 Setning, formaður fræðslusviðs ÍSÍ

 

13.05 – 13.50 Steen Gleie – Fræðileg umfjöllun um starf þjálfara

 

13.50 – 14.00 Fyrirspurnir til Steen Gleie

 

14.00 – 14.15 Þorlákur Árnason knattspyrnuþjálfari Stjörnunni

 

14.15 – 14.30 Guðbjörg Norðfjörð íþróttastjóri Hauka

 

14.30 – 14.45 Kaffihlé

 

14.45 – 15.00 Þráinn Hafsteinsson yfirþjálfari frjálsíþróttadeildar ÍR

 

15.00 – 15.15 Olga Bjarnadóttir fimleikaþjálfari Selfossi

 

15.15 – 15.30 Jacky Pellerin yfirþjálfari hjá sundfélaginu Ægi

 

15.40 – 16.10 Pallborð með þátttöku allra fyrirlesara undir stjórn Kára

Jónssonar lektors við HÍ

 
< Fyrri   Nćst >
Helstu tenglar
Forsíđa
Fréttir
Félagiđ
Námskeiđ
Kennsluefni
Tenglar
Pöntun fyrir boli 2010.
Innskráning





Týnt lykilorđ ?
Óskráđur notandi? Smelltu hér