|
laugardagur, 06 mars 2010 |
Málþing félagsins um íþróttir í framhaldsskólum fór fram síðasta miðvikudag og var vel sótt, en rétt tæplega 100 manns mættu á þingið. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningamálaráðherra opnaði þingið og
við tóku fyrirlesarar sem færðu rök fyrir gildi hreyfingar í
heilsuþjálfun með ýmsum gögnum og rannsóknum.
Unnið er við að gera þingið upp og verða niðurstöður settar hér á síðuna
ásamt þeim fyrirlestrum (glærum) sem fluttir voru. Ef allt gengur upp
þá getum við hugsanlega sett upptökur frá þinginu hér en þingið var allt
tekið upp af tæknimönnum HR.
Myndir frá málþinginu sem Torfi Magnússon tók má sjá hér:
Stjórn félagsins vill þakka samstarfsaðilum stuðninginn MS, Lýðheilsustöð, Menntamálaráðuneytinu, Háskóla Reykjavíkur og Lýsi. Snjólaugu Bjarnadóttir fyrir að ritarastörf á fundinum. Samúel Erni fyrir röggsama fundarstjórn og þeim íþróttakennurum sem mynduðu
starfshópinn sem stóð að þinginu en þeir eru:
Halla Karen Kristjánsdóttir
Torfi Magnússon
Petrún Jónsdóttir
Ingveldur Bragadóttir
Sverrir Ingibjartsson
Fulltrúi stjórnar í hópnum var Hreiðar Gíslason varaformaður félagsins.
Stjórn ÍKFÍ
|