Íþróttakennarafélag Íslands
Auglýsingar
Mjólkursamsalan ehf
Námskeið


Leiðbeinendanámskeið ÍSÍ í stafgöngu Prenta Senda
þriðjudagur, 25 maí 2010

Laugardaginn 29. maí, kl. 9-17 í Reykjavík verður leiðbeinendanámskeið ÍSÍ í stafgöngu.

Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa í heilbrigðisgeiranum s.s. íþróttakennurum, sjúkraþjálfurum, hjúkrunarfólki og iðjuþjálfurum. Námskeiðið gefur réttindi til að kenna stafgöngu. 

Nánar...
 
Sundráðstefna Prenta Senda
fimmtudagur, 10 september 2009

Í janúar á næsta ári 2010 verður norræn skólasundsráðstefna í Asker í Noregi.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér þetta nánar. 

 

http://www.svomming.no/?menuid=416&expand=23,416

 

Stjórn ÍKFÍ og SSÍ

 
Myndir frá námskeiði í Grebbestad Prenta Senda
fimmtudagur, 03 september 2009

Nú eru komnar myndir frá norræna íþróttakennaranámskeiðinu í Grebbestad inn á netsíðu íþróttakennarfélags Svíþjóðar. 

 

http://www.idrottslararna.se/grebbestad.html

 

Stjórn ÍKFÍ

 
Námskeið í stafgöngu Prenta Senda
föstudagur, 28 ágúst 2009

Laugardaginn 19. september,  kl. 9-17 á Akureyri.

 

Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa í heilbrigðisgeiranum s.s. íþróttakennurum, sjúkraþjálfurum, hjúkrunarfólki og iðjuþjálfurum.

Námskeiðið gefur réttindi til að kenna stafgöngu.

Skráning er í síma 514-4000 eða á This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it

 

Nánari upplýsingar er að finna á  www.isi.is

 
Námskeið á vegum FÁÍA Prenta Senda
mánudagur, 17 ágúst 2009


Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra.

   

Dómaranámskeið fyrir starfandi leiðbeinendur og iðkendur Boccia verður haldið í Árbæjarskóla, Reykjavík, laugardaginn 22. ágúst kl. 9.00 - 16.00.

Kennarar verða:  Ingi Bjarnar Guðmundsson og Karl Þorsteinsson.

Námskeiðið er einnig opið þeim sem vilja kynna sér leikinn.

Nánari upplýsingar gefur  Ingi Bjarnar í síma 690-9200.

 

Sunnudaginn 23. ágúst verður námskeið á sama stað fyrir leiðbeinendur sem annast æfingar og dansa fyrir aldraða.

 Námskeiðið verður tvískipt.  Annars vegar verða æfingar fyrir hreyfiskerta, t.d. stólaleikfimi og stóladans sem hentar vel á dvalarheimilum og dagvistun.  Hins vegar veða æfingar og dansar fyrir hressari iðkendur.

 

Kennarar verða:  Alberto Borges Moreno, Helena Jónasdóttir og Kolfinna Sigurvinsdóttir með æfingar og dans fyrir hreyfiskerta og Eygló Alexandersdóttir, Ástbjörg Gunnarsdóttir, Margrét Bjarnadóttir og Kolfinna Sigurvinsdóttir fyrir hressari iðkendur.

 

Námskeiðsgögn (æfingar og dansar) munu liggja frammi handa þátttakendum.

 

Þátttökugjald fyrir báða dagana er kr. 5000 og fyrir annan daginn kr. 3000 (hressing innifalin).

Skráning verður á skrifstofu UMFÍ í síma 568-2929 í síðasta lagi mánudaginn 17. ágúst.

Dagskrá námskeiðanna verður send til þátttakenda strax að skráningu lokinni.

 

 

 

Bestu kveðjur og í von um að heyra frá sem flestum þótt fyrirvari sé skammur.

 

     Stjórn FÁÍA

 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 9 af 29